Markaðstorg fasteignaviðskipta á Íslandi
Veldu þinn fasteignasala — í stað þess að treysta á heppni.
kaupaselja.is er markaðstorg þar sem kaupendur og seljendur velja sér fasteignasala út frá skýrum prófílum, reynslu, menntun og meðmælum — og fasteignasalar bjóða í verkefnin.
Veldu út frá reynslu, ekki heppni
Berðu saman prófíla fasteignasala: reynslu, menntun, hæfni og meðmæli frá öðrum notendum — áður en þú velur hver sinnir þínu máli.
Fasteignasalar bjóða í verkefnið
Þú birtir eignina á markaðstorginu og fasteignasalar bjóða hvað þeir taka í sölulaun og hvað er innifalið. Þú velur.
Sitt hvor fasteignasalinn — kaupandi og seljandi
Kaupendur geta á sama hátt valið sér sinn eigin fulltrúa. Þannig gætir hvor fasteignasali hagsmuna síns aðila, ekki beggja í einu.
Vegvísir
- Fasi 1 — núna: markaðstorg fyrir sölu- og kaupumboð fasteignasala.
- Fasi 2: tilboð í eignir beint í gegnum síðuna.
- Fasi 3: öpp fyrir einstaklinga og fasteignasala til samskipta og tilboðsgerðar.